Þú meinar það......
30.10.2009 15:22:41 / sigurjonv

Með öðrum morðum.....

Jæja....ég sit núna bara og hlusta á meistaraverkið Harry & Heimir, Með öðrum morðum. Ég verð að segja að þessir einkaspæjarar eru snillingar og eiga ekki í neinum vandræðum með að leysa hin flóknustu saka- og morðmál.

En hvað um það, þó þeir séu snjallir við að leysa ýmis flókin mál....þá er margt annað að frétta úr raunveruleikanum.

Til að byrja með, þá ákvað ég að laga örlítið tölvuna mína þar sem Delete takkinn á henni var farinn að standa á sér og var orðinn stífur. Ég kippti í hann eins og ég hef kippt í marga aðra takka á lyklaborðinu og þrifið undir þeim en þessi kipping fór ekki betur en svo að ég braut plast draslið undir honum og hef þess vegna verið Delete takka laus síðan :$
Það hefur aðeins flækt málin en þó ekki svo mikið, þannig að þetta takkaleysi hefur í raun litlu skipt og er í raun afskaplega litlar fréttir.....álíka merkilegar og að það hafi rignt um daginn.

Þá er komið að öðru máli sem meira máli skiptir, það er veðurstöðin. Ég og pabbi skelltum okkur upp á þak hérna um daginn og settum veðurstöðina upp. Það gekk allt ljómandi vel fyrir utan gott veður. Við drifum okkur í þessu því það var svo slæm veðurspá og ætluðum við heldur betur að láta veðurstöðina fá að finna fyrir því, þ.e. vonda veðrinu, en eftir að við settum hana upp, þá hefur bara ekki komið vont veður og okkur datt helst í hug að veðrið hafi skipt um skoðun þegar það frétti af veðurstöðinni og snúið við! Það var fyrst í gær sem vindáttin breyttist, en það hefur bara verið norðaustan hægviðri og í raun fremur undarlegt veður miðað við vindátt og loftþrýsting.
En hugsanlega gæti farið að blása eftir helgina, en það er þó ekki víst þrátt fyrir að djúp lægð komi upp að landinu en mér sýnist hún ekki gefa neinn vænlegan blástur!

Annað sem ég hef verið að dunda mér við eru ljósmyndatökur, en það er frekar óheppilegur tími sem ég nota við þá iðju þar sem þetta eru aðallega næturmyndir og ég veit ekki hvað nágrannarnir halda um mig því ég er alltaf að fara út á pall með myndavél og stundum sjónauka og horfi í allar áttir og upp í loftið. Ég hef einnig verið að bíða eftir flottum norðurljósum til að ná á mynd en eftir að hafa séð norðurljósin um síðustu helgi, þá hef ég beðið og beðið eftir næstu norðurljósagusu en alltaf þegar hún kemur, þá er skýjað.
En hérna eru 2 myndir sem ég tók í gærkvöldi á milli þess sem var skýjað og tek bara fram að þessar myndir eru alveg óunnar og hef ég ekkert fiktað í litum eða neinu í þeim til að laga þær.





En eitt sem mér þykir spennandi og hægt er að sjá með handsjónauka er Júpíter og 4 fylgitungl hans. Yfirleitt er hægt að sjá Júpíter, lágt á himni og ágætt er að staðsetja hann því hann er c.a. í suðri um 22:00 og ansi bjartur. Þessi 4 fylgitungl hans eru síðan eins og daufar stjörnur og kallast Gallileo tunglin en þetta eru tunglin sem Gallileo sá með sínum kíki þegar hann lifði fyrir þó nokkrum árum.

En ætli ég láti þetta ekki duga í bili

Ásdís skrifaði
Flottar myndir hjá þér :)
Sigurjón skrifaði
Takk fyrir það
mamma skrifaði
flottar myndir
amma skrifaði
æðislegar myndir
Ransý skrifaði
Já þetta er ótrúlegt myndefni og það er nauðsynlegt að láta skýringuna fylgja að ekkert hafi verið fiktað við myndirnar eftir á. Þú hefur auga fyrir þessu Sigurjón ! Og svo þetta sígilda : Að vera á réttum tíma á réttum stað.
Og með réttu græjurnar.
Sigurjón skrifaði
Ég þakka fyrir hrósið.....en fyrir áhugasama, þá setti ég nokkrar myndir inn á Facebook sem eru teknar svona seint að kveldi og nóttu og ekkert hefur verið fiktað í þeim.
Ingunn skrifaði
Flotta myndir Sigurjón. Passaður þig bara að læsast ekki úti þegar þú ert að laumast út á nóttunni til að taka myndir. Þér gæti orðið ansi kalt :(
Eyglo dk skrifaði
svaka finar myndir.. greinilega teknar a islandi..himininn allt ødru visi her hja okkur...
bestu kvedjur

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 65575
Klukkan